Vilja rannsókn á umfjöllun um WOW air

ÍFF vill láta kanna heimildaröflun íslenskra blaðamanna um málefni WOW …
ÍFF vill láta kanna heimildaröflun íslenskra blaðamanna um málefni WOW air hverju sinni. Víkurfréttir/Hilmar Bragi

Stjórn Íslenska flugmannafélagsins hefur í ljósi „óvæginnar umfjöllunar íslenskra fréttamiðla um WOW air undanfarið“ óskað eftir rannsókn Blaðamannafélags Íslands á hlunnindum og sporslum til blaðamanna frá helsta samkeppnisaðila WOW air.

Þetta kemur fram í bréfi stíluðu á Hjálmar Jónsson, formann Blaðamannafélagsins, sem einnig var sent á fjölmiðla. 

Íslenska flugmannafélagið er stéttarfélag flugmanna WOW air og í bréfi þess segir að óskað sé eftir rannsókninni með tilliti til gagnsæis blaðamanna gagnvart lesendum sínum.

Engin sérstök dæmi eru þó nefnd í bréfi ÍFF til Hjálmars.

Enn fremur vill ÍFF láta kanna heimildaröflun íslenskra blaðamanna um málefni WOW air hverju sinni, „þar sem margir þeirra reiða sig m.a. á upplýsingar frá bloggara, búsettum í Svíþjóð, sem er sjálfskipaður helsti sérfræðingur Íslands og oftar en ekki vitnað í órökstuddar hugleiðingar hans.“

Þó að umræddur bloggari sé ekki nafngreindur í bréfi ÍFF er augljóst að þarna er um að ræða Kristján Sigurjónsson, ritstjóra Túrista.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert