Ert þú með lausn við loftslagsvandanum?

Loftslagsbreytingar valda meðal annars vatnsskorti.
Loftslagsbreytingar valda meðal annars vatnsskorti. AFP

Almenningi og hagsmunaaðilum gefst kostur á að setja fram sjónarmið sín um hvernig íslenskt hugvit getur tekið forystu við þróun framtíðarlausna á loftslagsvandanum og hvernig íslensk stjórnvöld geta komið að því. Framtíðarnefnd forsætisráðherra hefur sett fram spurningar í samráðsgátt stjórnvalda um þróun lausna við loftslagsvandanum. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðs Íslands

Markmiðið með vinnu nefndarinnar er að leita leiða til að styðja við íslenskt hugvit við þróun lausna við loftslagsvandanum vegna afleiðinga loftslagsbreytinga sem verða sífellt augljósari eins og náttúruhamfarir á borð við hungursneyð og vatnsskort. Ljóst er að ríki um allan heim munu þurfa að leggja aukna áherslu á þróun, nýsköpun og hönnun til að geta brugðist við og dregið úr væntanlegum áhrifum hlýnunar jarðar. Þetta segir jafnframt á vefnum. 

Hér er samráðsgáttin. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert