Flóttamenn til Seltjarnarness

Seltjarnarnes.
Seltjarnarnes. mbl.is/Sigurður Bogi

Bæjarráð Seltjarnarnesbæjar tók á fundi sínum í gær jákvætt í erindi félagsmálaráðuneytisins um móttöku á allt að fimm flóttamönnum frá Úganda síðar á þessu ári en fólkið er staðsett í flóttamannabúðum í Kenía.

Um er að ræða samfélagslega ábyrgð sem bærinn telur rétt að axla og ætlar að standa vel að þessu krefjandi verkefni en þetta er í fyrsta sinn sem Seltjarnarnesbær tekur á móti flóttafólki.

Þetta kemur fram í tilkynningu.

Bæjarráð hefur falið Ásgerði Halldórsdóttur bæjarstjóra að undirbúa málið sem m.a. felst í að gera samning við félagsmálaráðuneytið um nauðsynlega þjónustu og aðstoð, leita eftir húsnæði fyrir fólkið sem hingað kemur og ráða verkefnastjóra. Verkefnastjóri mun hafa með höndum umsjón með móttöku flóttafólksins og vera tengiliður bæði við ráðuneytið og Rauða krossinn sem verður til aðstoðar í þessum efnum.

Móttaka flóttafólksins er liður í ákvörðun ríkisstjórnarinnar frá 12. október í fyrra þar sem samþykkt var að bjóða allt að 75 einstaklingum, sem hafa stöðu flóttafólks samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, til Íslands árið 2019.

Ákveðið var að taka annars vegar á móti hinsegin flóttafólki frá Kenía og hins vegar sýrlensku fólki sem er í Líbanon. Hópurinn sem hingað kemur mun fá fræðslu um íslenskt samfélag áður en hann kemur til landsins og nákvæm tímasetning á komu hans er unnin í samráði við Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna, að því er segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert