Fríhöfnin segir upp sex manns

Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli.
Fríhöfnin á Keflavíkurflugvelli. mbl.is/Sigurgeir Sigurðsson

Sex starfsmönnum hefur verið sagt upp hjá Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli í kjölfar þess að flugfélagið WOW air fór í rekstrarstöðvun í gær.

Ríkisútvarpið hefur eftir Þorgerði Þráinsdóttur, framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar, að um 30% þeirra sem farið hafi um flugstöðina hafi verið farþegar WOW air. Fall félagsins hafi því áhrif.

Reynt verði að halda uppsögnum í algeru lágmarki. Samtals vinna 210 manns í Fríhöfninni í 170 stöðugildum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert