Bíða þess nú að sjá pakka stjórnvalda

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar. mbl.is/Eggert

Eftir að saman náðist um meginlínur kjarasamninga milli Samtaka at­vinnu­lífs­ins ann­ars veg­ar og fé­laga versl­un­ar­manna og fé­laga Starfs­greina­sam­bands­ins hins veg­ar er enn eftir eitt mikilvægt atriði. Það er að sjá hvað felst í pakkanum sem stjórnvöld munu kynna fyrir deiluaðilum. Þetta segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í samtali við mbl.is.

Í nótt var tilkynnt um að náðst hefði saman um meginlínur kjarasamninganna og var boðuðum verk­föll­um hjá til­tekn­um hót­el­um og hóp­ferðafyr­ir­tækj­um. Verk­falli bíl­stjóra hjá Al­menn­ings­vögn­um Kynn­is­ferða sem aka á hluta leiða Strætó hef­ur ekki verið af­lýst en forsvarsmenn Eflingar munu funda með starfsmönnum fyrirtækisins klukkan 10 í dag.

„Það var ekki lengra komist“

Sólveig staðfestir að fulltrúar stjórnvalda og deiluaðila muni funda í húsnæði ríkissáttasemjara klukkan 9. Hún segist enn vera bundin trúnaði vegna fjölmiðlabanns sáttasemjara, en ljóst sé að aðilar hafi náð saman um launaliðinn sem deilt hafi verið um. „Þetta var niðurstaðan, það var ekki lengra komist,“ segir Sólveig.

Hún segir boltann núna vera hjá stjórnvöldum. „Það er mikilvægt atriði eftir sem eru stjórnvöld. Að þau komi til fundar við okkur á eftir og við fáum alvörusvör um hvað felist í þeim pakka sem þau hafa unnið að,“ segir hún. Spurð hvaða væntingar hún hafi til pakkans segir Sólveig að hjá Eflingu hafi verið lögð mest áhersla á skattalækkun fyrir þá sem hafa lægstar tekjur. „Ég bind miklar vonir við að það hafi verið aukið eitthvað í frá því síðast,“ segir hún.

Enn mál útistandandi hjá strætóbílstjórum

Spurð hvers vegna verkföllum starfsmanna Almenningsvagna Kynnisferða hafi ekki einnig verið aflýst segir Sólveig að þar séu enn ýmis mál sem eigi eftir að ræða við félagsmenn Eflingar hjá fyrirtækinu. Segir hún að séð verði til með framhaldið eftir fundinn klukkan 10 á eftir.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert