Sérstakur opinn kynningarfundur fer fram í höfuðstöðvum Íbúðalánasjóðs klukkan 11-12 á morgun þar sem ný skýrsla starfshóps félagsmálaráðherra um lækkun þröskuldar ungs fólks og tekjulágra inn á húsnæðismarkað verður kynnt.
„Líkt og fram kom á sameiginlegum kynningarfundi ríkisstjórnarinnar og aðila vinnumarkaðarins í ráðherrabústaðnum í gærkvöldi þá munu 40 ára verðtryggð lán verða aflögð frá og með næstu áramótum. Til að auðvelda tekjulágum hópum að eignast fasteign er í staðinn gert ráð fyrir nýrri tegund húsnæðislána. Hvers konar lán þessum hópum muni standa til boða mun byggja á tillögum áðurnefnds starfshóps, sem þegar hafa verið kynntar aðilum vinnumarkaðarins,“ segir í fréttatilkynningu.
Formaður starfshópsins, Frosti Sigurjónsson, Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og fulltrúar verkalýðshreyfingarinnar munu á fundinum fjalla um tillögurnar, fyrir hverja þær eru hugsaðar og hvernig þær muni skapa jafnari stöðu á húsnæðismarkaði en áður hefur verið, segir enn fremur. Tillögurnar séu alls í 14 liðum og fela meðal annars í sér tvær nýjar tegundir húsnæðislána sem ekki hafa sést á Íslandi áður.
