Minntust 70 ára afmælis NATÓ

Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, flutti ávarp í móttöku utanríkisráðherra Bandaríkjanna …
Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafsbandalagsins, flutti ávarp í móttöku utanríkisráðherra Bandaríkjanna í Andrew Mellon-salnum í gærkvöld. Ljósmynd/Aðsend

Utanríkisráðherrar aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins komu saman til fundar í Washington í í tilefni af 70 ára afmæli bandalagsins, en hinn 4. apríl 1949 var stofnsáttmáli NATÓ undirritaður af tólf stofnríkjum, þeirra á meðal Íslandi.

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra sótti fundinn og segir í frétt á vef Stjórnarráðsins að samskiptin við Rússland hafi verið ofarlega á baugi á fundinum, þ.m.t. staða INF-samningsins um meðaldrægar kjarnaflaugar sem sagt var upp eftir ítrekuð brot Rússlands á ákvæðum samningsins. Þá var þróun mála í Úkraínu og við Svartahaf einnig til umfjöllunar og hétu bandalagsríkin Georgíu og Úkraínu áframhaldandi stuðningi.

Baráttan gegn hryðjuverkum og staðan í Afganistan var einnig meðal fundarefna, þ.m.t. gangur mála í friðarumleitunum í landinu. Eins var frekari stuðningur Atlantshafsbandalagsins við uppbyggingarverkefni í Írak, Jórdaníu og Túnis ræddur, sem og áframhaldandi þátttaka í fjölþjóðlegu bandalagi gegn ISIS-hryðjuverkasamtökunum.

Í gær komu utanríkisráðherrar Atlantshafsbandalagsins saman í Andrew W. Mellon-salnum í Washington þar sem stofnsáttmáli Atlantshafsbandalagsins var undirritaður fyrir sjötíu árum. Bjarni Benediktsson þáverandi utanríkisráðherra skrifaði undir samninginn fyrir Íslands hönd.

„Atlantshafsbandalagið er einstakt varnarbandalag ríkja sem aðhyllast sömu gildi og deila hagsmunum. Það hefur stuðlað að friði og hagsæld í Evrópu og styrkt tengslin við Norður Ameríku. Það eldist jafnframt vel og hefur þróast samhliða breyttu og sífellt flóknara öryggisumhverfi. Grunnstoð Atlantshafsbandalagsins um samstöðu, og einn fyrir alla og alla fyrir einn, er tímalaus og á jafnt við í dag og fyrir sjötíu árum. Það reyndist heillaspor hjá ungu lýðveldi að undirrita Washington-sáttmálann þann 4. apríl 1949,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í fréttinni.

Guðlaugur Þór átti einnig tvíhliða fund með Nikola Dimitrov, utanríkisráðherra Norður-Makedóníu, þar sem aðild Norður-Makedóníu að Atlantshafsbandalaginu var til umfjöllunar, og Chrystia Freeland, utanríkisráðherra Kanada, þar sem öryggismál og fríverslunarmál voru helstu umræðuefni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert