Guðlaugur Þór fundaði með utanríkisráðherra Póllands

Jacek Czaputowicz og Guðlaugur Þór Þórðarson.
Jacek Czaputowicz og Guðlaugur Þór Þórðarson. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Tvíhliða samskipti, málefni norðurslóða og alþjóðamál voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Jacek Czaputowicz, utanríkisráðherra Póllands, sem fram fór á Kolabrautinni í Hörpu í hádeginu í dag.

Náin og góð samskipti eru á milli Íslands og Póllands, viðskiptin á milli landanna eru blómleg og greiðar flugsamgöngur frá pólskum borgum hingað til lands. Þá eru um sautján þúsund Pólverjar búsettir hér á landi. Í heimsókn sinni hittir Czaputowicz meðal annars landa sína sem búa á Íslandi, að því er segir á vef Stjórnarráðsins.

„Framlag Pólverja til íslensks samfélags er bæði mikið og margþætt. Pólverjar sem hér búa og starfa hafa átt ríkan þátt í efnahagsuppgangi undanfarinna ára og á erfiðum tímum eftir hrun sýndu pólsk stjórnvöld Íslandi mikið vinarþel með lánafyrirgreiðslu þegar aðrir synjuðu okkur um slíkt. Það er mér því mikið ánægjuefni að taka á móti pólska ráðherranum og ræða við hann um það góða samband sem er á milli Íslands og Póllands. Ég er viss um að við getum þróað það enn frekar og fært inn á fleiri spennandi brautir,“ segir Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra í tilkynningunni. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert