Ein sú öflugasta í 28 ár

Kort Veðurstofa Íslands.

Jarðskjálftahrinan sem nú er í gangi um 6 km suðvestur af Kópaskeri, er sú öflugasta á þessari sprungu séu skoðuð gögn aftur til 1991.

Mikið hefur dregið úr skjálftavirkni við Kópasker, en áfram er skjálftavirkni. Árla morguns, það er á milli klukkan 5 og 7 í morgun, mældust um 35 skjálftar á svæðinu En það eru heldur en heildarfjöldi daganna á undan. Þar af fjórir skjálftar af stærðinni 2,0. Búast má við því að smáskjálftar mælist áfram á svæðinu á næstunni.

Um 3000 skjálftar á 2 vikum

Frá því að hrinan hófst þann 23. mars hefur sjálfvirka mælakerfi Veðurstofunnar mælt tæplega 3000 skjálfta. Stærsti skjálfti hrinunnar mældist í 27. mars, af stærð 4,2 kl. 20:29, en í allri hrinunni hafa mælst 8 skjálftar af stærð 3 og yfir.

Kópaskersskjálftinn 13. janúar 1976 hrökk á svipuðum slóðum, en þekkt er að jarðskjálftahrinum geti fylgt stærri jarðskjálftar. Jarðskjálftahrinum lýkur þó í flestum tilfellum án stærri atburða og nú virðist vera að draga úr virkni þessarar hrinu.

Af þeim tæplega 3000 skjálftum sem mælst hafa með sjálfvirka mælakerfi Veðurstofunnar hafa um 1300 þeirra verið yfirfarnir handvirkt. Það þarf að gera til að tryggja áreiðanleika mælinganna. Að öllu jöfnu þarf að yfirfara um 70 skjálfta á dag, en þann tíma sem hrinan við Kópasker hefur verið í gangi hefur sá fjöldi farið upp í 150. Það eru náttúruvársérfræðingar Veðurstofunnar sem yfirfara skjálftana og tala um að "pikka" skjálfta.

Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur
Einar Bessi Gestsson, náttúruvársérfræðingur "pikkar" skjálfta úr hrinunni við Kópasker í gær. Veðurstofa Íslands
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert