Íslenskt – gjörið svo vel

Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Sigurður Hannesson, frmkvæmdastjóri Samtaka …
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Sigurður Hannesson, frmkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins. mbl.is/Hari

Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson, sem er verndari átaksins Íslenskt – gjörið svo vel setti Íslenska daga, með formlegum hætti í dag. Innlendir framleiðendur og verslanir hafa tekið höndum saman og ætla að bjóða upp á úrval af íslenskum vörum í fjölmörgum verslunum víða um land fram til 20. apríl, að því er segir í tilkynningu.

Að baki átakinu Íslenskt – gjörið svo vel standa Samtök iðnaðarins, Samtök atvinnulífsins, Samtök verslunar og þjónustu og Bændasamtök Íslands. Átakið hófst í nóvember síðastliðnum þegar landsmönnum gafst kostur á að fara inn á vefsvæðið gjoridsvovel.is til að setja saman lista yfir þær íslensku vörur sem ætti að bjóða erlendum gestum. Tilgangur átaksins er að efla vitund Íslendinga á íslenskum vörum en átök sem þessi hafa verið reglulega undanfarin ár. Fyrirtæki sem framleiða eða selja íslenskar vörur geta tekið þátt í átakinu. Miðað er við vörur sem uppfylla þau skilyrði sem fram koma í fánalögum. Þau fyrirtæki og þeir framleiðendur sem taka þátt í átakinu fá aðgang að myndmerki þess og geta nýtt það á umbúðir, heimasíður, samfélagsmiðla eða annað kynningarefni sitt.

  • Eftirtaldir framleiðendur eru þátttakendur: SS, Ali, Nói Síríus, Matfugl, Ferskar kjötvörur, Landssamband bakarameistara, Kjörís, Myllan, MS, Sölufélag garðyrkjubænda, Iðnmark, Ölgerðin, Kjarnafæði, Móðir náttúra, Pottagaldrar, Vilko, Kaffitár og Nýja kaffibrennslan.  
  • Eftirtaldar verslanir eru þátttakendur: Bónus, Krónan, Melabúðin, Nettó, Hagkaup, Nóatún og Kjörbúðin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert