Minni áhugi á nýbyggingum

Hlutfallslega færri nýbyggingar voru seldar á höfuðborgarsvæðinu í febrúar samanborið við mánuðinn á undan. 11% viðskipta á höfuðborgarsvæðinu í febrúar voru vegna kaupa á nýbyggingum samanborið við 16% viðskipta í janúar. Nýbyggingar eru alla jafna dýrari en eldri íbúðir og gæti hlutfallslega minni sala þeirra í febrúar skýrt lækkun á vísitölu íbúðaverðs milli mánaða. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íbúðalánasjóðs.

Það sem af er ári hafa 120 nýbyggingar verið seldar á höfuðborgarsvæðinu en til samanburðar seldust 276 nýjar íbúðir á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2018. Á ákveðnum svæðum utan höfuðborgarsvæðisins er þróunin önnur. Í febrúar voru 24% íbúðaviðskipta utan höfuðborgarsvæðisins vegna nýbygginga og það sem af er ári hafa 119 nýbyggingar selst þar, í samanburði við 83 fyrir ári. Hlutfallsleg aukning varð mest í Reykjanesbæ og Hveragerði.

Orðið hagstæðara að leigja

Einfaldur samanburður á þróun kaup- og leiguverðs þriggja herbergja íbúða víðs vegar um land sýnir að almennt séð hefur orðið ívið hagstæðara að leigja en kaupa síðustu ár þar sem húsnæðisverð hefur hækkað hraðar en leiguverð. Á síðasta ári gaf samspil kaup- og leiguverðs til kynna að það tæki 16 ár fyrir leigugreiðslur að greiða upp kaupverð þriggja herbergja íbúðar á Akranesi og í Kópavogi. Styttri tíma tæki það í Reykjanesbæ og austurhluta Reykjavíkur eða um 13 ár, segir í skýrslunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert