Starfsmönnum hefur fjölgað um 39%

Starfsmönnum skólanna hefur fjölgað mikið
Starfsmönnum skólanna hefur fjölgað mikið mbl.is/​Hari

Alls störfuðu 8.473 starfsmenn við grunnskóla í haust og fjölgaði um 4,2% frá fyrra ári. Þó að nemendur í grunnskólum hafi aldrei verið fleiri en síðasta haust var engu að síður einn starfsmaður á hverja 5,4 nemendur.

Starfsmönnum grunnskóla hefur fjölgað um 39,1% frá hausti 1998 en á sama tíma hefur nemendum fjölgað um 8,2%. Fjölgun starfsfólks má fyrst og fremst rekja til fjölgunar stuðningsaðila nemenda.

Í umfjöllun um mál  þetta í Morgunblaðinu í dag segir Ragnar Þór Pétursson, formaður Kennarasambands Íslands, að eftir að sveitarfélögin tóku við rekstri grunnskóla hafi grunnskólakerfið orðið mjög kostnaðarsamt, mönnun hafi blásið út. „Úr varð verkefni sem við stóðum ekki fyllilega undir.“

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert