„Ber vitni um málefnafátækt“

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir hagsmunaskrá sína í fullu samræmi …
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir hagsmunaskrá sína í fullu samræmi við reglur Alþingis. mbl.is/Kristinn Magnússon

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra hafnar því alfarið að hagsmunir fjölskyldu hans ráði nokkru um stuðning hans við þriðja orkupakkann. Fréttavefurinn Eyjan vakti í dag athygli á að Ágústa Johnson, eiginkona Guðlaugs Þórs, sé skráður forráðamaður fyrirtækisins Steinkápur ehf. sem sé þinglýstur eigandi jarðar þar sem Búlandsvirkjun á að rísa.

Segir í frétt Eyjunnar að að Guðlaugur Þór hafi látið þess ógetið í hagsmunaskrá á vef Alþingis.

Guðlaugur Þór svarar þessum fullyrðingum á Facebook-síðu sinni í kvöld og segir þær „bera vitni um málefnafátækt þeirra sem hafa ákveðið að berjast gegn þriðja orkupakkanum með öðru en rökum“.

Telur ráðherra í færslu sinni upp fimm atriði og segir hagsmunaskrá sína í fullu samræmi  við reglur Alþingis.

Jörðin sé skógræktarjörð sem tengdaforeldrar hans hafi ræktað upp frá 1982 og félag í eigu Ágústu síðan keypt árið 2015 eftir að hún hafði verið í sölu í nokkur ár.

„Allt tal um að mín fjölskylda hagnist á Búlandsvirkjun, hvað þá um milljarða króna, er fjarstæðukennt. Búlandsvirkjun er ekki í orkunýtingarflokki núgildandi rammaáætlunar. Hvorki ég né fjölskylda mín eigum nokkra aðild að áformum um þá virkjun. Ef svo ólíklega færi að hún yrði að veruleika yrðu áhrifin á Tungufljót og umhverfi þess afar neikvæð. Vonandi eru allar hugmyndir um þessa virkjun út af borðinu um alla framtíð. Um það erum við fjölskyldan öll sammála,“ segir Guðlaugur Þór í færslu sinni.

Þá hafi samþykkt eða höfnun þriðja orkupakkans engin áhrif á hagsmuni landeigenda á hugsanlegum virkjanasvæðum, enda fjalli þriðji orkupakkinn hvorki um eignarhald né nýtingu á auðlindum. „Staðreyndin er enn fremur sú að með innleiðingu þriðja orkupakkans eins og lagt er til eru settar enn frekari skorður við lagningu rafmagnssæstrengs en nú eru við lýði,“ segir Guðlaugur Þór.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert