Hafa skipað samninganefndir sínar

mbl.is/Styrmir Kári

Samninganefndir ríkisins og Bændasamtaka Íslands, vegna endurskoðunar á búvörusamningi um starfsskilyrði nautgriparæktar, hafa verið skipaðar. Þetta kemur fram í fréttatilkynninu frá atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytinu.

Þar segir að í búvörusamningunum, sem gerðir voru árið 2016 og gildi til tíu ára, sé mælt fyrir um að tvisvar á samningstímanum, 2019 og 2023, verði samningarnir teknir til endurskoðunar þar sem litið verði til þess hvort gera þurfi breytingar.

Samninganefnd ríkisins skipa:

Unnur Brá Konráðsdóttir, formaður
Bryndís Eiríksdóttir
Elísabet Anna Jónsdóttir
Viðar Helgason frá FJR.

Samninganefnd bænda skipa:

Guðrún S. Tryggvadóttir, formaður BÍ
Einar Ófeigur Björnsson, varaformaður BÍ
Gunnar Kr. Eiríksson, stjórnarmaður í BÍ
Guðrún Lárusdóttir, stjórnarmaður í BÍ
Guðfinna Harpa Árnadóttir
Arnar Árnason, formaður Landssambands kúabænda
Ingvi Stefánsson, formaður Félags svínabænda.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert