Lögreglan vill ná tali af ökumanni

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Norðurlandi eystra óskar eftir því að ná tali af ökumanni blárrar bifreiðar er ekið var á unga stúlku á Siglufirði 28. mars um kl. 14:37 við stoppistöð skólabíla syðst í Snorragötu.

Upplýsingar um hver ökumaðurinn er liggja hins vegar ekki fyrir hjá lögreglu og er því óskað eftir því að viðkomandi hafi samband við lögreglu í síma 444-2800, að því er lögreglan greinir frá í færslu á Facebook. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert