Skyndilokun við Dettifoss

Ferðamenn við Dettifoss. Mynd úr safni.
Ferðamenn við Dettifoss. Mynd úr safni. mbl.is/Sigurður Bogi

Mikið leysingavatn er nú á svæðinu við Dettifoss að því er talsmenn Vatnajökulsþjóðgarðs greina frá. Vatn er farið að flæða yfir veg 862 áleiðis að fossinum og um Sanddal rennur nú á undir snjónum sem er alla jafna ekki til staðar.

„Við það skapast lífshættulegar aðstæður og því hefur þjóðgarðsvörður, í samráði við Vegagerðina og lögreglu, lokað svæðinu fyrir umferð. 

Óvíst er hversu lengi lokunin varir, en þessar aðstæður komu síðast upp vorið 2016 og þá var lokað í um einn og hálfan sólarhring,“ segir í Facebook-færslu þjóðgarðsins.

Kort/Map.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert