Búast við fullum bílastæðum um páskana

Með því að bóka bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggi farþegar …
Með því að bóka bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggi farþegar sér stæði um páskana. mbl.is/Hilmar Bragi

Forsvarsmenn Isavia gera ráð fyrir því að bílastæði við Keflavíkurflugvöll fyllist um páskana líkt og undanfarin ár og eru ferðalangar hvattir til að bóka bílastæði við flugvöllinn fyrir brottför til að tryggja sér stæði.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia. 

Þar segir að með því að bóka bílastæði á vefsíðu Keflavíkurflugvallar tryggi farþegar sér stæði um páskana, auk þess sem hægt er að fá bílastæðin á betri kjörum en þegar greitt er við hlið „Því fyrr sem bókað er, því lægra verð fæst.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert