Ökumenn í vímu á ferð

mbl.is/Eggert

Líkt og flestalla daga stöðvaði lögreglan á höfuðborgarsvæðinu nokkra ökumenn í nótt sem grunaðir eru um akstur undir áhrifum fíkniefna og áfengis.

Einn var stöðvaður um áttaleytið á Vesturlandsvegi á Kjalarnesi. Hann er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna.

Um hálfeittleytið í Reykjavík í nótt var svo annar stöðvaður, grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna og vörslu fíkniefna. Hann hafði ekki ökuskírteini sitt meðferðis, segir í dagbók lögreglunnar.

Þá var einn stöðvaður um hálftvö í Hafnarfirði. Sá er grunaður um akstur undir áhrifum áfengis og fíkniefna, vörslu fíkniefna og brot á lyfjalögum. Hann var vistaður í fangageymslum í nótt.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert