Aftur lokað að Dettifossi

Mikið vatnsrennsli hefur verið við Dettifoss. Lokað fyrir umferð nú …
Mikið vatnsrennsli hefur verið við Dettifoss. Lokað fyrir umferð nú síðdegis vegna asahláku á svæðinu. Ljósmynd/Vatnajökulsþjóðgarður

Aftur er búið að loka fyrir umferð að Dettifossi og nú vegna asahláku á svæðinu. Greint var frá því í morgun að búið væri að opna fyrir umferð um Detti­foss­veg frá Þjóðvegi 1 og norður að foss­in­um, en lokað hafði verið frá því á mánudag.

Á Facebook-síðu Vatnajökulsþjóðgarðs var síðan greint frá því fyrir skemmstu að lokað hefði verið fyrir umferð á ný vegna asahláku og að miðað við veðurspá þá væri ólíklegt að opnað yrði aftur inn á svæðið á morgun. „En við stöndum vaktina og látum vita um leið og eitthvað breytist,“ segir í færslunni.

Greint var frá því á mánudag að gripið hefði verið til skyndilokunnar við Dettifoss vegna mikils leys­inga­vatns á svæðinu. Vatn var þá farið að flæða yfir veg 862 áleiðis að foss­in­um og um Sand­dal rann á und­ir snjón­um sem er alla jafna ekki til staðar.

Leys­inga­vatnið breytti ásýnd svæðis­ins gríðarlega myndaðist til að mynda nýr 30 metra hár foss á svæði,  sem er alla jafna al­veg þurrt. Sagði Guðmundu Ögmundsson þjóðgarðsvörður Vatnajökulsþjóðgarðar í samtali við mbl.is að þess­ar aðstæður skapist á nokk­urra ára fresti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert