Víða skúrir á landinu

Hiti verður á bilinu 3 til 12 stig í dag.
Hiti verður á bilinu 3 til 12 stig í dag.

Í dag er spáð suðvestan 8 til 15 metrum á sekúndu og víða skúrum en bjart verður að mestu norðaustan- og austantil.

Úrkomumeira verður vestantil á landinu um tíma síðdegis. Hiti verður á bilinu 3 til 12 stig, hlýjast norðaustanlands. Lægir og styttir upp í nótt.

Austlægt átt verður og 3 til 8 metrar á sekúndu um hádegið á morgun, skýjað og þurrt að mestu, en bjartara norðaustantil. Vaxandi norðaustanátt þegar líður á morgundaginn.

8 til 15 metrar á sekúndu verða austantil á landinu annað kvöld og rigning, en snjókoma til fjalla. Hægari vindur og yfirleitt þurrt um landið vestanvert. Kólnandi veður og hiti verður á bilinu 0 til 6 stig annað kvöld.

Veðurvefur mbl.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert