Allt tiltækt slökkvilið við Sléttuveg

Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu sinnir nú útkalli við Sléttuveg í Reykjavík.

Útkall barst klukkan 9:56 samkvæmt upplýsingum frá Neyðarlínunni.

Útkallið barst laust fyrir klukkan 10 í morgun.
Útkallið barst laust fyrir klukkan 10 í morgun. mbl.is/Árni Sæberg

Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu barst tilkynning um mikinn reyk sem lagði frá bílakjallara húsnæðisins og var reykurinn einnig kominn í stigagang húsnæðisins. Unnið er að því að rýma húsið, auk þess sem slökkvilið reynir að komast að upptökum eldsins.

Mikill og þykkur reykur er í bílakjallaranum og enn er óljóst hver upptök eldsins eru. Talið er að um eld í bifreið sé að ræða.

Uppfært kl. 10:45: Búið er að rýma húsnæðið og reykræsta stigaganga. Engin hætta er á ferð, en slökkvilið vinnur enn að því að slökkva eld sem reyndist loga í dekkjum og hafði jafnvel læst sig í nálæga bifreið.

Enn er mikill reykur í bílakjallaranum og fær enginn að fara inn nema reykkafarar slökkviliðsins. Farið er að sjá fyrir endann á aðgerðum.

Slökkviliðið að störfum á Sléttuvegi.
Slökkviliðið að störfum á Sléttuvegi. mbl.is/Jón Pétur
Frá Sléttuvegi.
Frá Sléttuvegi. mbl.is/Jón Pétur
mbl.is/Jón Pétur
mbl.is/Jón Pétur
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert