Eldvakt til miðnættis í Dalshrauni

Slökkviliðsmenn að störfum í Dalshrauni í gær.
Slökkviliðsmenn að störfum í Dalshrauni í gær. mbl.is/Árni Sæberg

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var með svokallaða eldvakt til miðnættis í Dalshrauni í Hafnarfirði vegna eldsvoðans sem varð þar í gær.

Þetta segir varðstjóri slökkviliðisins í samtali við mbl.is.

Að lokinni eldvaktinni fóru síðustu menn heim og vettvangurinn var afhentur lögreglunni, sem fer nú með rannsókn málsins.

Verulegt tjón varð vegna eldsvoðans. Skemmdir urðu á íbúðum og rífa þurfti svolítið af þakinu, að sögn varðstjórans. Ekki er vitað hvernig eldurinn kviknaði en talið er að eldsupptökin hafi orðið í her­bergi er­lends pars á þrítugs­aldri.

Slökkviliði tókst að ráða niður­lög­um elds­ins á sjötta tím­an­um í gær, eft­ir að hafa bjargað fjór­um af þaki húsnæðisins í Dalshrauni á meðan það logaði. Eng­inn ligg­ur und­ir grun vegna brun­ans. Eng­an skaðaði en á fimmta tug manns bjó á efri hæðinni. Allt fólkið var af er­lend­um upp­runa og gist­i það í hús­næði Rauði kross­inns í nótt. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert