Skelfileg sjón blasti við eigandanum

Svakalegt er að sjá hvernig skilið var við bílinn.
Svakalegt er að sjá hvernig skilið var við bílinn. Ljósmynd/Lögreglan

„Eigandi þessarar bifreiðar lenti í því að hjólbarði sprakk á bifreiðinni í gærkvöldi. Bifreiðin var skilin eftir á Stapavegi rétt hjá Stofnfiski í Vogum á Vatnsleysuströnd. Er eigandinn kom að bifreiðinni í morgun blasti þessi sjón við honum,“ skrifar lögreglan á Suðurnesjum í færslu á Facebook, þar sem hún lýsir eftir vitnum að skemmdarverkunum. 

Að sögn lögreglu er talið að þetta hafi gerst á milli 22 í gærkvöldi, þegar eigandinn yfirgaf bílinn, til 10:45 í morgun þegar tilkynning barst lögreglu. 

„Allir þeir sem hafa upplýsingar um málið eru hvattir til að hafa samband við okkur í gegnum 1-1-2 eða hér á samfélagsmiðlum,“ segir í færslu lögreglunnar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert