Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands á Íslandi

Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands.
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Tvíhliða samskipti, mannréttindamál og öryggismál voru efst á baugi á fundi Guðlaugs Þórs Þórðarsonar utanríkisráðherra og Winston Peters, utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, sem fram fór í Grindavík í dag.

Íslandsheimsókn Peters, sem jafnframt gegnir embætti varaforsætisráðherra Nýja-Sjálands, er liður í ferð hans um Norðurlönd en Nýja-Sjáland opnaði nýverið sendiráð í Stokkhólmi sem annast fyrirsvar gagnvart öllum norrænu ríkjunum. Þetta er í fyrsta sinn sem nýsjálenskur utanríkisráðherra sækir Ísland heim en ríkin tóku upp stjórnmálasamband árið 1988.

Í frétt á vef Stjórnarráðsins segir að þeir Peters og Guðlaugur Þór Þórðarson ræddu á fundi sínum sameiginleg hagsmunamál ríkjanna og samvinnu, meðal annars á sviði mannréttinda en Nýja-Sjáland studdi framboð Íslands til setu í mannréttindaráði Sameinuðu þjóðanna í fyrra. Þá voru jafnframt til umræðu á fundinum öryggismál, hryðjuverkaógnin, alþjóðaviðskipti, málefni hafsins og baráttan gegn loftslagsbreytingum svo fátt eitt sé nefnt.

„Þótt hálf jarðarkringlan skilji að Ísland og Nýja-Sjáland eiga þessi tvö ríki margt sameiginlegt. Landshagir beggja eru um margt svipaðir og samfélögin grundvallast bæði á gildum á borð við lýðræði, mannréttindi og jafnrétti kynjanna. Það kemur því vart á óvart að á fundi okkar Peters hafi komið fram gagnkvæmur vilji til að auka samskipti ríkjanna og þróa áfram en nýsjálensk stjórnvöld horfa í vaxandi mæli til Norðurlandanna, bæði sem líkt þenkjandi vinaþjóða og vegna norðurslóða,“ er haft eftir Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra í tilkynningu. 

Fyrr í dag skoðuðu utanríkisráðherrarnir fjölbreytta náttúru Reykjanesskaga og kynntu sér atvinnulíf á svæðinu, meðal annars sjávarútvegsfyrirtækið Vísi í Grindavík og HS Orku í Svartsengi.  Í kvöld sátu þeir vinnukvöldverð ásamt Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra og dómsmálaráðherra. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert