Allt að 17 stiga hiti og þurrt

Væntanlega munu margir nýta góða veðrið á morgun til útivistar …
Væntanlega munu margir nýta góða veðrið á morgun til útivistar enda ekki á hverju ári sem slíkar hitatölur sjást á sumardaginn fyrsta. mbl.is/Golli

Óvenjuhlýtt loft er að berast yfir landið og er spáð allt að 17 stiga hita á morgun, sumardaginn fyrsta. Regnsvæðin berast eitt af öðru yfir landið en á milli þeirra munu gefast ágætir þurrir kaflar að sögn veðurfræðings. Svo vel vill til að von er á þurrum kafla á morgun.

„Í dag, á morgun og raunar alveg fram í næstu viku er útlit fyrir austlægan vind og óvenjulitla tilbreytingu í vindátt. Það loft sem berst yfir landið er talsvert hlýrra en það sem að jafnaði gefst á þessum árstíma.

Regnsvæði berast eitt af öðru yfir landið, en milli þeirra munu gefast ágætir þurrir kaflar. Nú vill svo til að útlit er fyrir þurran kafla einmitt á fimmtudaginn (á morgun), en þá er fyrir löngu búið að ákveða að halda upp á sumardaginn fyrsta. Þá er útilit fyrir að verði bjart nokkuð víða og hitinn gæti náð í um eða yfir 15 stig í mörgum landshlutum.

Það er þó ekki von á að hitinn nái sér á strik með austurströndinni þar sem blæs af hafi og ekki er loku fyrir það skotið að þoka láti á sér kræla á þeim slóðum. Síðdegis á fimmtudag þykknar upp á landinu og fer að rigna um kvöldið, en áfram þurrt norðanlands,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands.

Veðurspá fyrir næstu daga

Austlæg átt 3-10 m/s í dag, en 10-15 syðst. Rigning eða súld, en þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 7 til 16 stig, hlýjast norðaustanlands.
Austan 8-13 á morgun, en 13-18 með suðurströndinni. Víða bjartviðri, en þokubakkar austast á landinu. Hiti 10 til 17 stig, en svalara á Austfjörðum. Þykknar upp síðdegis og fer að rigna annað kvöld, en áfram þurrt norðanlands.

Á fimmtudag (sumardaginn fyrsta):

Austan 8-13 m/s, en 13-18 með suðurströndinni. Víða bjartviðri, en þokubakkar austast á landinu. Hiti 10 til 17 stig, en svalara á Austfjörðum. Þykknar upp síðdegis og fer að rigna um kvöldið, en áfram þurrt norðanlands. 

Á föstudag:
Austan 5-13 m/s með vætu, en úrkomulítið um landið vestanvert. Hiti frá 6 stigum austast, upp í 15 stig á Vesturlandi. 

Á laugardag:
Austan 5-13 og rigning með köflum um allt land. Hiti breytist lítið. 

Á sunnudag, mánudag og þriðjudag:
Austanátt, víða 5-10 m/s. Dálítil væta af og til um landið austanvert, en lengst af þurrt annars staðar. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Vesturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert