Banaslys í Langadal

mbl.is/Sverrir

Karlmaður með erlent ríkisfang en búsettur hér á landi lést í umferðarslysi í Langadal seint í gærkvöldi. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu.

Í færslu á Facebook-síðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra kemur fram að rétt um klukkan 22 í gærkvöldi barst lögreglunni á Norðurlandi vestra tilkynning um umferðarslys á þjóðvegi 1 um Langadal. Björgunarlið fór þegar á vettvang.

Þarna hafði bifreið á suðurleið lent utan vegar og oltið margar veltur. Einn maður var í bílnum. Reyndist hann alvarlega slasaður og báru lífgunartilraunir ekki árangur. Var ökumaður úrskurðaður látinn á vettvangi. 

Vegna vettvangsrannsókna verður þjóðvegur 1 lokaður í nokkurn tíma upp úr klukkan 10. Vegfarendum er bent á hjáleiðir um Svínvetningabraut og Skagastrandarveg og Þverárfjallsveg til Sauðárkróks.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert