Hafa sent fleiri mál til saksóknara

Skiptastjóri þrotabús United Silicon hefur á síðustu mánuðum tilkynnt nokkur …
Skiptastjóri þrotabús United Silicon hefur á síðustu mánuðum tilkynnt nokkur ný mál sem tengjast þrotabúinu til embættis héraðssaksóknara. mbl.is/RAX

Skiptastjóri þrotabús United Silicon hefur á síðustu mánuðum tilkynnt nokkur ný mál sem tengjast þrotabúinu til embættis héraðssaksóknara. Ólafur Þór Hauksson héraðssaksóknari staðfestir þetta í samtali við mbl.is, en RÚV greindi fyrst frá.

Á vef RÚV er haft eftir Geir Gestssyni, skiptastjóra bús United Silicon, að eftir því sem vinnu skiptastjóra hafi miðað áfram hafi „eitt og annað“ verið sent til héraðssaksóknara til nánari skoðunar.

Geir sagði við mbl.is í ágúst í fyrra að þrotabúið væri að skoða alvarlega að fara í frekari mál gegn Magnúsi Garðarssyni, stofnanda og fyrrverandi forstjóra félagsins.

Þá hafði þrotabúið þegar höfðað tvö mál gegn Magnúsi vegna meintra fjár­svika og nemur heildarupphæðin sem þar er undir alls yfir 4,7 milljónum evra, eða hartnær 650 milljónum íslenskra króna.

Fyrsta skóflustungan að kísilveri United Silicon tekin í Helguvík árið …
Fyrsta skóflustungan að kísilveri United Silicon tekin í Helguvík árið 2014. Magnús Garðarsson, stofnandi og þáverandi forstjóri United Silicon, stendur hér á milli Ragnheiðar Elínar Árnadóttur þáverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra og Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar þáverandi forsætisráðherra. Ljósmynd/Víkurfréttir/Eyþór

Ólafur Þór segir við blaðamann að tilkynningar um fleiri mál hafi borist frá skiptastjóra þrotabúsins í skömmtum og að rannsókn þeirra mála hafi verið sameinuð við þá rannsókn sem var þegar í gangi hjá embættinu.

Aðrir en Arion fá líklega ekkert upp í kröfur

Kröfur í búið námu alls um 23,5 milljörðum króna og Arion banki var stærsti kröfuhafinn af alls 156 slíkum. Krafa Arion hljóðaði upp á 9,5 milljarða króna og var forgangskrafa.

Samkvæmt því sem skiptastjóri segir við RÚV er líklegt að ekkert fáist upp í almennar kröfur í þrotabúið, né launakröfur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert