Hiti hefur ekki farið niður fyrir frostmark neins staðar á landinu í dag, en það sem vekur athygli er að 18,4 gráðu munur er á mesta og minnsta hita sem mælst hefur á landinu í dag.
Samkvæmt mælingum á vef Veðurstofunnar var hæsti hiti sem mælst hefur á láglendi í dag í Öræfum, 18,7 gráður, en minnsti hiti mældist á Haugi, 0,3 gráður. Munar þar 18,4 gráðum.
Þá er einnig töluverður munur á mesta og minnsta hita á hálendi. Hiti náði 11,3 gráðum í Vatnsskarði eystra, en mældist minnst 1,1 gráða á Skarðsmýrarfjalli.
Eins og mbl.is hefur greint frá er reiknað með blíðskaparveðri á morgun, sumardaginn fyrsta, og gætu hitamet fallið á höfuðborgarsvæðinu.