Ríkislögreglustjóri, í samráði við lögreglustjórann á Norðurlandi eystra, hefur ákveðið að aflýsa óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu í Öxarfirði. Þessi ákvörðun er byggð á mati Veðurstofunnar um að þessari hrinu sé lokið.
Óvissustigi vegna jarðskjálfta í Öxarfirði var lýst yfir 28. mars síðastliðinn vegna hrinu sem byrjaði 23. mars.
Óvissustig almannavarna þýðir að aukið eftirlit er haft með atburðarás sem á síðari stigum gæti leitt til þess að heilsu og öryggi fólks, umhverfis eða byggðar verði ógnað. Að lýsa yfir óvissustigi er hluti af verkferlum í skipulagi almannavarna til að tryggja formleg samskipti og upplýsingagjöf á milli viðbragðsaðila og almennings.