Svana nýr formaður Verkfræðingafélagsins

Svana Helen Björnsdóttir er nýkjörinn formaður Verkfræðingafélags Íslands.
Svana Helen Björnsdóttir er nýkjörinn formaður Verkfræðingafélags Íslands. Ljósmynd/Aðsend

Svana Helen Björnsdóttir rafmagnsverkfræðingur og framkvæmdastjóri Stika hefur verið kjörin nýr formaður Verkfræðingafélags Íslands. Niðurstöður kosninga til stjórna félagsins voru kynntar á aðalfundi 11. apríl síðastliðinn. Svana Helen tekur við formannsembættinu af Páli Gíslasyni sem gaf ekki kost á sér til áframhaldandi formennsku.

Í tilkynningu frá félaginu kemur fram að Svana hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum fyrir félagið í gegnum tíðina. Hún lauk Dipl.-Ing./M.Sc. prófi í raforkuverkfræði og er doktorsnemi í kerfisverkfræði við Háskólann í Reykjavík.

Þá hefur Svana setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja, samtaka og stofnana og hefur víðtæka reynslu af rekstri fyrirtækja. Hún hefur meðal annars verið formaður Samtaka iðnaðarins, formaður Samtaka sprotafyrirtækja, átt sæti í háskólaráði Háskólans í Reykjavík og situr í Vísinda- og tækniráði. Svana á ennfremur sæti á kirkjuþingi og í kirkjuráði íslensku þjóðkirkjunnar.

Verkfræðingafélag Íslands er stærsta félag tæknimenntaðra á Íslandi. Í félaginu eru verkfræðingar og tæknifræðingar, samtals um 4300 félagsmenn. Einnig veitir skrifstofan Stéttarfélagi byggingarfræðinga og Stéttarfélagi tölvunarfræðinga þjónustu.

Auk formanns eru eftirtalin í stjórn: Birkir Hrafn Jóakimsson, Hlín Benediktsdóttir, Jóhannes Benediktsson, Páll Á. Jónsson og varameðstjórnendur eru Guðrún A. Sævarsdóttir og Anna Beta Gísladóttir.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert