„Ég er mjög þakklát þeim félagsmönnum sem greiddu atkvæði og auðvitað mjög ánægð með það að samningarnir hafi verið samþykktir með svona afgerandi hætti,“ segir Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, í samtali við mbl.is.
Lífskjarasamningarnir svokölluðu voru samþykktir með 79% atkvæða félagsmanna Eflingar.
Sólveig Anna segist sjálf ekki hafa verið viss um að raunin yrði sú að samningarnir yrðu samþykktir með svo afgerandi hætti. „Ég veit að það eru aldrei neinir samningar nógu góðir, en en ég held að að aðkoma stjórnvalda hafi verið með þeim hætti að það gerði fólki auðveldara að samþykkja það að launahækkanir fyrsta árið yrðu ekki miklar.“
„Svo eru þarna forsenduákvæði sem gefa fólki ákveðið öryggi,“ segir Sólveig Anna, og á þar sérstaklega við kaupmáttaraukninguna sem kveðið er á um í samningunum.
Kjörsókn félagsmanna Eflingar vegna kjarasamninganna var 10,16%. Sólveig Anna segir dræma þátttöku ekki hafa komið sér á óvart. „Við gerðum okkar besta til þess að hvetja fólk til þess að taka þátt. Kjörskráin er eins stór og hún gæti mögulega verið, óháð starfshlutfalli og starfsaldri er fólk á kjörskrá, sem gerir það að verkum að þarna er mikið af fólki sem er nýbúið að hefja störf, ungt fólk og fólk í hlutastarfi sem kannski brennur ekki fyrir því að fá að taka þátt í svona atkvæðagreiðslu.“
Þá segir hún fólk oft gjarnara á að láta sig málin varða sé það ósátt. „Í ljósi þess hlýtur 79% atkvæða með samningnum að vera mjög góður árangur.“