29 ára gamall karlmaður var í gær dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi í Héraðsdómi Vestfjarða, fyrir að taka tvær ljósmyndir af konu sem var í sturtu og særa með því blygðunarsemi hennar.
Atvikið átti sér stað í febrúar í fyrra og þótti héraðsdómara sannað að maðurinn hefði gerst sekur um þá háttsemi sem lýst var í ákæru, að hafa smeygt farsíma sínum undir hurð að sturtu þar sem konan var að baða sig og tekið umræddar myndir.
Manninum var gert að greiða rúmar 250.000 kr. í sakarkostnað.