Sjálfsafrán mest hjá yngstu aldurshópum

Þorskur berst á land.
Þorskur berst á land. mbl.is/​Hari

Sjálfsafrán á eldri þorski er álitið mjög lítið og þar af leiðandi ólíklegt að það hafi áhrif á stærð veiðistofns, að því er fram kemur í svari Kristjáns Þórs Júlíussonar sjávarútvegsráðherra við fyrirspurn Ingu Sæland, Flokki fólksins, um sjálfsát þorsks.

Í svarinu kemur fram að þorskur, líkt og margar aðrar dýrategundir, stundi afrán á yngri einstaklingum tegundarinnar. Að mati Hafrannsóknastofnunar sé afrán mest hjá yngstu aldurshópum; þannig éti tveggja ára þorskar eins árs þorsk og þriggja ára þorskar éti tveggja ára þorsk.

Meira afrán í Barentshafi

Í fylgiskjali frá er m.a. vísað í rannsóknir á afráni þorsks í Barentshafi og kemur þar fram að hjá Barentshafs-þorskinum sé sjálfsafrán mun meira en við Ísland. Við Ísland hefur sjálfsafrán verið minna skoðað, að því er fram kemur í Morgunblaðinu  í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert