Ósátt við endurkomu Ágústs Ólafs

Samfylkingarþingmaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson snéri aftur á þing í gær.
Samfylkingarþingmaðurinn Ágúst Ólafur Ágústsson snéri aftur á þing í gær. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson

Sema Erla Serdar og samtökin Ungir jafnaðarmenn eru ósátt við endurkomu Ágústs Ólafs Ágústssonar á þing. Ágúst Ólafur greindi frá því fyrr í vikunni að hann hygðist setjast aftur á þing, en hann mun fór í leyfi í lok síðasta árs eftir að hafa fengið áminningar frá trúnaðarnefnd Samfylkingarinnar vegna framkomu sinnar í garð konu í byrjun síðasta sumars.

Bæði Sema Erla og Ungir jafnaðarmenn hafi í kvöld birt yfirlýsingu á Facebook-síðum sínum vegna þessa og segja einn sitjandi þingmann flokksins hafa sýnt af sér hegðun sem teljist „með öllu óásættanleg“.



„Í janúar síðastliðnum báðu Ungir jafnaðarmenn Ágúst Ólaf Ágústsson formlega um að segja af sér embætti sínu, vegna kynferðislegrar áreitni. Slík hegðun samrýmist ekki femíniskum gildum hreyfingarinnar,“ segir í færslunni. Ungir jafnaðarmenn fagni þeim verkferlum sem til staðar séu innan flokksins í málum sem þessum og það séu jákvæðar breytingar í takt við kröfur #MeToo byltingarinnar. Ungir jafnaðarmenn hafi ekki ætlað opinbera afstöðu sína í málinu af virðingu við hlutaðeigandi, en samtökin telji rétt að deila henni nú.

„Það er krafa Ungra jafnaðarmanna að allir kjörnir fulltrúar þjóðarinnar hagi sér af betri háttsemi en hefur fengið að líðast. Breytingar þurfa að eiga sér stað í stjórnmálamenningunni.“

„Kynferðisleg áreitni er með öllu ólíðandi, óháð því hver birtingarmynd hennar er, hvar hún á sér stað og hver það er sem beitir henni. Að flokkur jafnarmanna, með forystukonur metoo-byltingarinnar innanborðs, flokkur sem segist berjast gegn kynbundnu ofbeldi, flokkur mannréttinda og femínískrar hugmyndafræði, skuli vera með fulltrúa á þingi sem hefur gerst sekur um kynferðislega áreitni er með öllu óásættanlegt og það er siðlaust. Það gerir lítið úr öllum þeim árangri sem náðst hefur í baráttunni gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í stjórnmálum og það gerir lítið úr raunum þolenda slíks ofbeldis. Flokkurinn getur ekki furðað sig á því að konur endist illa í ábyrgðarstöðum innan flokksins og á sama tíma boðið ítrekað upp á starfsumhverfi eins og þetta,“ segir Sema Erla í færslu sinni.

Hún sé búin að vera í Samfylkingunni í meira en áratug og hafi gegnt þar hinum ýmsu ábyrgðarstöðum. „Mér hefur oft misboðið meðvirknin og vinnubrögðin innan flokksins en sjaldan jafn mikið og nú. Að taka ekki skýra afstöðu gegn kynferðislegri áreitni og ofbeldi í öllum tilvikum er hræsni. Ég er viss um að það myndi heyrast hærra í flokksfélögum mínum ef þingmaður annars flokks gerðist sekur um kynferðislega áreitni og sæti sem fastast á þingi. Hvað Ágúst Ólaf varðar getur hann beðið um annað tækifæri í prófkjöri flokksins og/eða hjá kjósendum í næstu kosningum. Samfélagsmiðlar duga bara ekki til.

Þetta er kannski ekki vinsælasta skoðun dagsins hjá félögum mínum í Samfylkingunni en ef við ætlum að koma í veg fyrir kynferðislega áreitni og ofbeldi á vettvangi stjórnamálanna og í samfélaginu öllu þurfum við að gera það af heilindum og hugrekki en ekki eftir hentugleika og því hver gerandinn er.“

Fréttin hefur verið uppfærð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert