Kynntust í keyrslunni

Áki er 25 af stöðinni og Kristjana númer 119. Bæði …
Áki er 25 af stöðinni og Kristjana númer 119. Bæði aka Hyundai Santa Fe. mbl.is/RAX

Samvinna hjónaleysanna Áka Ingvarssonar og Kristjönu Sölvadóttur sem eru leigubílstjórar hjá Hreyfli er alveg til fyrirmyndar. Það var 1994 sem Áki byrjaði í afleysingum í starfi þar sem hann ætlaði að stoppa stutt.

Málin þróuðust þó á annan veg, því um jól og áramót fékk Áki túra sem gáfu vel og eftir nýár var hann beðinn um að bæta janúarmánuði við. Þar með var teningnum kastað og Áki hefur verið í starfinu síðan.

Árið 2008 fékk Áki Kristjönu Sölvadóttur sem aðstoðarmann sinn á Benzinn í útgerð sinni – og ekki löngu síðar rugluðu þau saman reytum. Þau eru í dag hvort um sig með stöðvarleyfi hjá Hreyfli; Áki er 25 af stöðinni og Kristjana númer 119. Bæði á Hyundai Santa Fe, en þar varð Kristjana fyrri til og kom manni sínun á bragðið.

„Að hjón eða sambýlisfólk séu bæði í leiguakstri er ekkert einsdæmi og sjálfum finnst mér þetta koma vel út,“ segir Áki í viðtali sem lesa má í heild á baksíðu Morgunblaðsins í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert