Stúlka bitin og klóruð af hundi

mbl.is/Eggert

Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir eigendum hunds sem beit níu ára gamla stúlku illa í magann og klóraði hana í andlitið. Samkvæmt fæslu á Facebook-síðu lögreglunnar gerðist þetta síðdegis í dag við Heiðarskóla í Reykjanesbæ.

Stúlkan er sögð mjög skelkuð en hún var á gangi í Heiðarskólahverfinu með barnavagn og lítið barn með sér. Stúlkan segir að hundurinn hafi ekki verið í bandi og þegar hún hafi nálgast hundinn, sem hafi verið svartur og hvítur, hafi hann bitið hana.

Lögreglan hvetur eiganda hundsins til þess að setja sig í samband við hana í gegnum Facebook eða með því að hringja í 112. Þá hafi lögreglan áhuga á að heyra í fólki sem mögulega hafi orðið vitni að atvikinu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert