Um 300 manns gengu úr myrkrinu í ljósið

Holtavegur var lýstur upp með kertaluktum sem vísaði þátttakendum veginn …
Holtavegur var lýstur upp með kertaluktum sem vísaði þátttakendum veginn í upphafi göngunnar sem hófst klukkan 3 í nótt. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson

„Þetta var alveg dásamlega fallegt,“ segir Kristín Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri Píeta-samtakanna, um göngu samtakanna „Úr myrkrinu í ljósið“ sem fór fram í fjórða skipti í nótt. Gang­an er farin í minn­ingu þeirra sem lát­ist hafa í sjálfs­vígi og til að efla von þeirra sem eiga um sárt að binda vegna van­líðanar, sjálfs­vígs­hugs­ana og sjálfsskaða.

Gangan hófst klukkan þrjú í nótt við húsnæði KFUM og KFUK við Holtaveg í Laugardag og merktu sjálfboðaliðar Holtaveginn niður að Laugardalnum með kertaluktum sem vísuðu þátttakendum veginn. „Þetta var eins og að koma inn í ævintýraland,“ segir Kristín.

Þetta erí fjórða sinn sem gangan fer fram hér á …
Þetta erí fjórða sinn sem gangan fer fram hér á landi. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson

Falleg stund sem kom dásamlega á óvart

Jói P. og Króli settu tóninn fyrir gönguna, alls fimm kílómetra leið og áætlar Kristín að um 300 manns hafi tekið þátt. Gangan er hluti af alþjóðlegri göngu sem haldin er um svipað leyti. Gangan fór fram á fjórum stöðum hér á landi, Reykja­vík, Ak­ur­eyri, Ísaf­irði og Seyðis­firði sem og í fjöl­mörg­um lönd­um og er reiknað með að yfir 400.000 manns hafi gengið úr myrkri inn í birtu á sama tíma um heim allan.

Einnig var gengið úr myrkrinu í ljósið í snjónum fyrir …
Einnig var gengið úr myrkrinu í ljósið í snjónum fyrir norðan. Ljósmynd/Aðsend

Við endamark göngunnar í Laugardalnum tók Þráinn Árni Baldvinsson, gítarleikari og söngvari í Skálmöld, á móti göngufólki með gítarspili.

Kristín tók við starfi framkvæmdastjóra samtakanna um áramótin og er þetta í fyrsta skipti sem hún tekur þátt í göngunni. „Þetta var ofsalega fallegt. Ég vissi ekkert hvað ég var að fara út í en þetta kom mér dásamlega á óvart.“

Þátttakendur voru vel merktir Píeta samtökunum.
Þátttakendur voru vel merktir Píeta samtökunum. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson

„Þetta snertir alla“

Frá því að Kristín tók við starfinu segist hún að það hafi komið henni mest á óvart hvað málefni snertir alla. „Þetta snertir alla. Það eru allir með sögu sem tengist sjálfsvígum óþægilega nálægt sér. Að sjá það svart á hvítu hefur slegið mig mest.“

Píeta sam­tök­in voru stofnuð á Íslandi árið 2016 en halda upp á árs starfsaf­mæli nú í ár. Þörf­in á Píeta sam­tök­un­um hef­ur sannað sig á þessu ári en sem dæmi má nefna að 19 meðferðarviðtöl voru veitt í apríl í fyrra en 158 í apríl á þessu ári.

Helgi Viðar Hilmarsson var meðal þeirra sem tóku þátt í göngunni og tók hann myndirnar sem sjá má hér að neðan. 

Um 300 manns tóku þátt í göngunni í Reykjavík.
Um 300 manns tóku þátt í göngunni í Reykjavík. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Starfsmenn Rauða krossins voru í Laugardalnum.
Starfsmenn Rauða krossins voru í Laugardalnum. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Fólk á öllum aldri tók þátt í að ganga úr …
Fólk á öllum aldri tók þátt í að ganga úr myrkrinu í ljósið. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Gengin var fimm kílómetra leið í Laugardalnum.
Gengin var fimm kílómetra leið í Laugardalnum. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Kalt var í veðri en svo sannarlega bjart þegar göngunni …
Kalt var í veðri en svo sannarlega bjart þegar göngunni var við það að ljúka. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Sólin tók á móti göngufólki í morgunsárið.
Sólin tók á móti göngufólki í morgunsárið. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Aðstandendur skrifuðu falleg skilaboð til ástvina sinna.
Aðstandendur skrifuðu falleg skilaboð til ástvina sinna. Ljósmynd/Helgi Viðar Hilmarsson
Gang­an er í minn­ingu þeirra sem lát­ist hafa í sjálfs­vígi …
Gang­an er í minn­ingu þeirra sem lát­ist hafa í sjálfs­vígi og til að efla von þeirra sem eiga um sárt að binda vegna van­líðanar, sjálfs­vígs­hugs­ana og sjálfsskaða. Ljósmynd/Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert