Krefst milljarðs í miskabætur

Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns.
Ragnar Aðalsteinsson, lögmaður Guðjóns. mbl.is/Hari

Lögmaður Guðjóns Skarphéðinssonar hefur krafist miskabóta upp á rúman milljarð króna vegna Guðmundar- og Geirfinnsmálsins.

Ragnar Aðalsteinsson lögmaður greindi frá þessu í Silfrinu á RÚV í morgun en Guðjón var sýknaður í Hæstarétti í fyrra, 38 árum eftir sakfellingu hans í málinu.

Í síðustu viku sagði Ragnar að hinir sýknuðu hefðu ekki fengið formleg boð um bótagreiðslur, auk þess sem að þær bótafjárhæðir sem stæðu til boða væru of lágar miðað við fordæmi í málinu.

Í Silfrinu í morgun sagði Ragnar meðferðina sem sakborningar í málinu sættu fordæmalausa á vestræna vísu, bæði hvað varðaði handtöku og harðræði. Þá hafi nánast allar reglur um verndun sakborninga verið brotnar, ekki einungis af lögregluvaldinu heldur einnig af dómstólum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert