Gagnkvæmt háskólanám viðurkennt

Frá undirritun samningsins í Peking.
Frá undirritun samningsins í Peking. Ljósmynd/Menntamálaráðuneytið

Menntamálaráðherrar Íslands og Kína, Lilja Alfreðsdóttir og Chen Baosheng, undirrituðu samning um gagnkvæma viðurkenningu háskólanáms á milli landanna á fundi Peking í dag og ræddu enn fremur um aukið samstarf ríkjanna á sviði menntamála.

„Þessi samningur markar tímamót fyrir bæði íslenska og kínverska námsmenn. Samningurinn verður til þess að auðvelda til muna nemendaskipti milli landanna og ég bind vonir við að fleiri nemendur beggja ríkja skoði þá valkosti sem bjóðast í íslenskum og kínverskum háskólum,“ er haft eftir Lilju í fréttatilkynningu frá menntamálaráðuneytinu.

Þar segir enn fremur að Kína hafi gert hliðstæða samninga við rúmlega 50 önnur ríki, þar á meðal við hin Norðurlöndin, og hafi þeir stuðlað að auknu aðgengi og flæði milli háskólastofnana þeirra. „Rúmlega 30 kínverskir námsmenn stunda nú nám á Íslandi en um 30 Íslendingar stunda nám í Kína á ári hverju. Íslenskir háskólar eiga þegar í margvíslegu samstarfi við kínverska háskóla og hefur Háskóli Íslands meðal annars gert samstarfssamninga um nemendaskipti við fimmtán háskóla í Kína.“

Þá segir að ráðherrarnir hafi einnig rætt um mikilvægi tungumálasamstarfs og sóknarfæri í því samhengi. Íslenskukennsla hafi verið við Alþjóðaháskólann í Peking frá árinu 2006 og mikill áhugi og aðsókn sé að námsleið í kínversku við Háskóla Íslands.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert