Lokaáfangi í áratugalangri baráttu

Frá umræðunni um þungunarrof á Alþingi.
Frá umræðunni um þungunarrof á Alþingi. mbl.is/Kristinn Magnússon

Kvenréttindafélag Íslands fagnar því að frumvarp um þungunarrof hafi verið samþykkt á Alþingi og segir að um heillaspor sé að ræða í átt til kynfrelsis og jafnréttis kynjanna. 

Fram kemur í yfirlýsingu félagsins að lögin séu lokaáfangi í áratugalangri baráttu til að tryggja kynfrelsi kvenna.

Félagið þakkar þeim konum sem hafa háð baráttuna fyrir þungunarrofi síðustu áratugi.

Yfirlýsingin í heild sinni:

„Kvenréttindafélag Íslands fagnar því að loksins séu ákvarðanir um þungunarrof í höndum kvenna.

Frumvarp til laga þess efnis var samþykkt á Alþingi fyrr í dag, þar sem sjálfsákvörðunarréttur kvenna yfir eigin líkama var staðfestur. Lögin eru lokaáfangi í áratugalangri baráttu sem formæður okkar hófu og stórt skref átt til þess í að tryggja kynfrelsi kvenna.

Kvenréttindafélag Íslands þakkar þeim konum sem hafa háð baráttuna fyrir þungunarrofi síðustu áratugi og minnist þeirra kvenna sem í aldanna rás hafa liðið fyrir að hafa ekki yfirráð yfir eigin líkama.

Víðtæk samfélagssátt ríkir á Íslandi um nauðsyn þess að konur geti rofið þungun að eigin ósk. Þessi löngu tímabæru lög eru heillaspor í átt til kvenfrelsis og jafnréttis kynjanna.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert