Prestaköll í Fossvogi sameinuð

Grensáskirkja.
Grensáskirkja. mbl.is/Kristinn Ingvarsson

Biskup Íslands hefur ákveðið, byggt á samþykkt kirkjuþings 2018, að embætti sóknarprests í Bústaðaprestakalli og embætti sóknarprests í Grensásprestakalli verði lögð niður þann 1. júní.

Séra María Ágústsdóttir hefur þjónað sóknarprestsembætti Grensásprestakalls og mun halda því áfram til mánaðarmóta, að því er kemur fram í tilkynningu.

Séra Pálmi Matthíasson verður sóknarprestur í sameinuðu prestakalli, Fossvogsprestakalli, frá 1. júní næstkomandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert