Rafmagnslaust í Hafnarfirði og Garðabæ

Hafnarfjörður.
Hafnarfjörður. mbl.is

Rafmagnslaust er í Hafnarfirði, Garðbæ og Álftanesi vegna bilunar. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Veitna.

Beðist er velvirðingar á þessu.

„Við bendum þér á að slökkva á þeim rafmagnstækjum, sem ekki slökkva á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar rafmagn kemur á að nýju. Það á sérstaklega við um eldavélar, mínútugrill og fleiri hitunartæki. Eins ráðleggjum við þér að slökkva á viðkvæmum tækjum á borð við sjónvörp,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert