Höturum verður mögulega refsað

Hinn sífellt hatandi söngvari, Matthías Tryggvi Haraldsson, á leið heim …
Hinn sífellt hatandi söngvari, Matthías Tryggvi Haraldsson, á leið heim á hótel í gærkvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Skipuleggjendur Eurovision-söngvakeppninnar munu mögulega refsa Hatara eftir að liðsmenn hópsins veifuðu palestínskum borðum í útsendingu keppninnar í gærkvöldi. Frá þessu er sagt á vef ísraelska miðilsins Haaretz

Munu ræða afleiðingarnar

Framkvæmdastjórn keppninnar mun ræða „afleiðingar þessarar aðgerðar,“ segir í yfirlýsingu, að því er fram kemur í ofannefndri frétt Haaretz. 

Í samtali við mbl.is í gærkvöld sagðist Felix Bergsson, fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, ekki vita hvort atvikið myndi hafa einhverjar afleiðingar. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert