Engin von um 20 stig

Kort/Veðurstofa Íslands

Engin von er um að það mælist 20 stiga hiti einhvers staðar á landinu í þessari viku, segir veðurfræðingur Veðurstofu Íslands. Umskipti hafa orðið og verður kaldast á norðaustanverðu landinu. Þrátt fyrir norðaustanátt kemur lægðardrag í veg fyrir sól á suðurhluta landsins.

„Í síðustu viku var hlýtt norðaustanlands og frá þriðjudegi til laugardags var hiti að mælast kringum 20 stig þar sem best lét. Það var hlýr loftmassi úr suðri og bjart veður sem skapaði þessi hlýindi. 
Það er skemmst frá því að segja að í vikunni sem nú er að hefjast en engin von um að 20 stig mælist á landinu. Umskipti hafa orðið á hitastigi um landið norðaustanvert sem verður kaldasti landshlutinn þessa vikuna. Norðaustanáttin kemur svöl af hafi og rigningarsuddi af og til fylgir með. 
Þegar norðaustanátt hefur verið nefnd í spánni eru eflaust margir íbúar sunnan heiða sem vonast eftir sólskini. Lægðardrag er hins vegar viðloðandi suðurhluta landsins og útlit fyrir að það verði meira og minna skýjað um allt land bæði í dag og á morgun og einhver væta í flestum landshlutum. Hitinn verður frá 4-5 stigum á norðausturhorninu, upp í 13-14 stig á Vesturlandi, en þar er helst von að örlítil göt myndist í skýjahlemminn sem liggur yfir landinu,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings Veðurstofu Íslands.

Veðurspáin fyrir næstu daga

Norðaustan 5-10 m/s, en hæg breytileg átt suðvestan til á landinu. Skýjað og víða dálítil rigning eða súld. Rofar sums staðar til á Vesturlandi að deginum, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti frá 4 stigum á norðausturhorninu, upp í 13 stig á Vesturlandi.

Á þriðjudag:
Norðaustan og austan 3-10 m/s og dálítil rigning eða súld. Skýjað með köflum á Vesturlandi og stöku skúrir síðdegis. Hiti frá 5 stigum með norðausturströndinni upp í 14 stig á Vesturlandi. 

Á miðvikudag og fimmtudag:
Norðaustlæg eða breytileg átt 3-8. Skýjað á landinu og sums staðar svolítil væta. Hiti 5 til 12 stig, hlýjast á Suðvesturlandi. 

Á föstudag:
Hæg vestlæg eða breytileg átt. Skýjað að mestu og skúrir á víð og dreif, einkum síðdegis. Hiti breytist lítið. 

Á laugardag og sunnudag:
Norðaustan 5-13 m/s. Víða dálítil rigning, jafnvel slydda í innsveitum norðan- og austanlands. Úrkomulítið á Vesturlandi. Hiti frá 2 stigum í innsveitum fyrir norðan, upp í 10 stig á Vesturlandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert