Fundu kannabisplöntur, landa og amfetamín

mbl.is/Arnþór Birkisson

Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði í gærmorgun kannabisræktun í íbúðarhúsnæði, en þar var að finna rúmlega 150 kannabisplöntur. Í húsnæðinu fannst einnig töluvert magn af landa sem verið var að brugga.

Að sögn lögreglu viðurkenndi húsráðandi bæði ræktunina og bruggunina og afsalaði sér plöntum, landa svo og búnaði, sem hann hafði notað við framleiðsluna, til eyðingar.

Auk þessa fann lögregla umtalsvert magn af fíkniefnum í húsleit sem farið var í, að fenginni heimild, í öðru, ótengdu máli. Var fíkniefni að finna víðs vegar í íbúðarhúsnæði í umdæminu og var um að ræða meintar e-töflur, kannabisefni og amfetamín. Húsráðandi var handtekinn og færður til skýrslutöku á lögreglustöð, að því er segir í tilkynningu. 

Lögreglan minnir á fíkniefnasímann 800-5005. Í hann má hringja til að koma á framfæri upplýsingum um fíkniefnamál. Fíkniefnasíminn er samvinnuverkefni lögreglu og tollyfirvalda og er liður í baráttunni við fíkniefnavandann.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert