Ný innkaupastefna matvæla fyrir ríkið samþykkt

Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á …
Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári. mbl.is/Ómar Óskarsson

Nýrri innkaupastefnu matvæla fyrir ríkisaðila, sem var samþykkt á fundi ríkisstjórnarinnar á föstudaginn síðastliðinn, er ætlað að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum við framleiðslu, flutninga og umsýslu matvæla. 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, lagði fram tillöguna. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. 

Íslenska ríkið kaupir matvæli fyrir um þrjá milljarða króna á ári. Vonast er til að stefnan verði fordæmisgefandi fyrir sveitarfélög og aðra. Kjarni stefnunnar  er að innkaup ríkisaðila á matvælum byggi á markmiðum um sjálfbærni, góða lýðheilsu og umhverfisvitund.

Innkaupastefnan var unnin á vettvangi Matarauðs Íslands í samstarfi við fjármála- og efnahagsráðuneytið, heilbrigðisráðuneytið, umhverfis- og auðlindaráðuneytið og Samband íslenskra sveitarfélaga. Við vinnslu stefnunnar var haft víðtækt samráð við hagaðila og drög að stefnunni voru kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í mars 2019.

„Ég fagna því að ríkisstjórnin hafi samþykkt innkaupastefnu fyrir opinber innkaup matvæla sem byggir á því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum við framleiðslu, flutninga og umsýslu matvæla. Í stefnunni er lögð áhersla á að máltíðir í mötuneytum séu í samræmi við ráðleggingar embættis landlæknis um mataræði og að neytendur séu upplýstir um uppruna og næringargildi matarins. Það er mín trú að stefnan muni efla íslenska matvælaframleiðslu og veita henni enn frekari tækifæri til nýsköpunar og þróunar.“ Þetta er haft eftir sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra í tilkynningu. 

Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.
Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert