Ungt fólk sem styður EES

Ungt fólk sem styður EES-samninginn.
Ungt fólk sem styður EES-samninginn. Skjáskot af auglýsingunni

Alls eru andlit 272 ungmenna á auglýsingu í Fréttablaðinu í dag undir yfirskriftinni: „Ekki spila með framtíðina okkar. Við styðjum áframhaldandi aðild Íslands að EES-samningnum. Við viljum frjálst, opið og alþjóðlegt samfélag og stöndum saman gegn einangrunarhyggju.“

Í tilkynningu frá hópnum kemur fram að auglýsingin er kostuð af fólkinu á myndunum. Fólkið er allt undir fertugu og spannar megnið af hinu pólitíska litrófi, bæði flokksbundið og óflokksbundið. Fólkið er af öllum kynjum, með ólíkan bakgrunn, búsett erlendis og víðs vegar um landið.

„Stigvaxandi umræða um EES-samninginn undanfarin misseri, sem hefur því miður verið knúin áfram af síendurteknum rangfærslum og ósannindum, nú síðast um þriðja orkupakkann, er meðal ástæðna þess að ungt fólk úr öllum áttum sá ástæðu til að árétta þessi skilaboð.

Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar í Bretlandi um úrsögn Breta úr Evrópusambandinu og í forsetakosningunum í Bandaríkjunum 2016 svaf ungt fólk á verðinum með afleiðingum sem eru öllum ljósar. EES-samningurinn og annað alþjóðlegt samstarf hefur fært Íslendingum lífsgæði [og] ótal tækifæri sem væri óhugsandi að vera án. Tækifæri eins og frelsi til að ferðast, stunda viðskipti, búa og mennta okkur í Evrópu og lengi mætti telja.

Þetta eru hlutir sem við öll njótum góðs af og lítum í dag á sem sjálfsagðan hluta af okkar dagsdaglega lífi. Því segjum við einum rómi: Ekki spila með framtíð okkar,“ segir í tilkynningu sem þau hafa sent til fjölmiðla í tilefni af auglýsingunni.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert