Drífa á þingi Evrópusambands verkalýðsfélaga

Drífa Snædal, forseti ASÍ, talaði fyrir lýðræði og réttindum launafólks …
Drífa Snædal, forseti ASÍ, talaði fyrir lýðræði og réttindum launafólks gegn hægri öfgum á þingi Evrópusambands verkalýðsfélaga (ETUC) í gær. Ljósmynd/Aðsend

Drífa Snædal, forseti ASÍ, ávarpaði þing Evrópusamband verkalýðsfélaga (ETUC) í gær þar sem rætt var um þann kafla í aðgerðaráætlun ETUC sem fjallar um „Traustara lýðræði og betri framtíð í Evrópu fyrir vinnandi fólk“.

Drífa byrjaði á að lýsa stuðningi við inngang áætlunarinnar og þá hugmyndafræði sem hún endurspeglar um að öfgar sem nú vaða uppi í Evrópu eru afleiðing af djúpstæðum vanda en ekki orsökin. „Við ræðum hvernig við getum varið og stuðlað að auknu lýðræði. Öfgarnar birtast með mismunandi hætti frá einu landi til annars en við vitum öll að fólk er allstaðar eins: „Við viljum öryggi, frið og réttinn til vinnu og sjá fyrir okkur sjálf,“ sagði Drífa meðal annars í ræðu sinni.

Hún vísaði einnig til efnahagshrunsins á Íslandi og afleiðingar þess, atvinnuleysis, verðbólgu, hruni í kaupmætti og skulda heimilanna. Hún minntist á þá pólitísku ólgu sem fylgdi í kjölfarið og andóf gegn hefðbundnum stjórnmálaflokkum og stofnunum samfélagsins.

Hægri öfgastefna ekki náð fótfestu á Íslandi

Drífa benti hins vegar á hægri öfgastefna hafi ekki náð fótfestu á Íslandi enn sem komið er. Hún þakkaði það meðal annars þeirri staðreynd að eftir hrunið komst vinstri stjórn til valda sem með samtali við aðila vinnumarkaðarins setti sér markmið um að verja lágmarkslaun, félagsleg réttindi launafólks og velferðarkerfið í stað niðurskurðar og árása á réttindi launafólks sem var veruleikinn víða annar staðar í Evrópu.

„Við lögðum ekki mælikvarða kapítalismans og peninganna til grundvallar við mat á grunngildum okkar, hornsteinum velferðarkerfisins, sem var hlutskipti margra annarra ríkja sem urðu illa úti í kreppunni,“ sagði Drífa.

Drífa áréttaði að kjarninn í starfi stéttarfélaganna er verja þá velferð sem hefur verið sameiginlega byggð upp og að gera engar málamiðlanir þegar kemur að velferðinni eða sameiginlegum grunnstoðum og hvernig rétturinn til að taka ákvarðanir er virtur. „Við stöndum frammi fyrir öflum sem vilja ræna okkur sameiginlegum auðlindum okkar, öflum sem eru þau næst öflugustu í heiminum, auðmagninu. Aðeins samstaða alþýðunnar er sterkari,“ sagði Drífa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert