Efling vill ábendingar um vanefndir

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, heldur ræðu á Ingólfstorgi.
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, heldur ræðu á Ingólfstorgi. mbl.is/​Hari

Efling – stéttarfélag hefur fengið ábendingar um að fyrirtæki hafi brugðist við launahækkunum í nýjum kjarasamningi með því að taka af starfsfólki bónusa, aukagreiðslur og ýmiss konar hlunnindi.

Í tilkynningu kemur fram að stéttarfélagið hafi sent Samtökum atvinnulífsins, SA, erindi vegna þess sem félagið kallar hópuppsögn Árna Vals Sólonssonar, sem rekur hótelin Capital-Inn, City Park Hotel og City Center Hotel, á launakjörum starfsfólks síns eftir samþykkt kjarasamninganna og hefur óskað eftir fundi með SA.

Sjálfur sagði Árni Valur aðgerðina löglega í samtali við mbl.is þar sem hann hafi sagt upp launaliðnum. Fólk hafi samt rétt til þess að líta á það sem uppsögn.

Efling kallar eftir frekari ábendingum frá félagsmönnum um slíkar aðgerðir fyrirtækja. Markmiðið er að safna gögnum og öðlast betri yfirsýn yfir efndir lífskjarasamninganna.

„Vanefndir á kjarasamningum eru grafalvarlegt mál, og hljóta að teljast sérstaklega siðlausar í ljósi þess að verkalýðshreyfingin féllst á mjög hófsamar launahækkanir á fyrsta ári samningstímans,“ segir Viðar Þorsteinsson, framkvæmdastjóri Eflingar, í tilkynningunni. „Er það til of mikils mælst að fólk fái sína launahækkun upp á 17 þúsund krónur?“

Viðar segir að það mjög miður að Samtök atvinnulífsins verji þessa hegðun. „Við þetta vakna ansi margar spurningar, til dæmis varðandi möguleikann á riftun, eins og miðstjórn ASÍ hefur bent á í ályktun sinni frá 15. maí síðastliðnum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert