Þungbært að sitja undir ásökunum

Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis.
Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. mbl.is/Golli

„Það er starfsmönnum skrifstofu Alþingis þungbært að sitja undir ásökunum um að greiða tilhæfulausa reikninga og gæta ekki að meðferð almannafjár,“ segir í yfirlýsingu frá skrifstofu Alþingis í tilefni af umræðu á þingfundi í gær þar sem því hafi verið haldið fram að rökstuddur grunur væri um að Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, hefði dregið sér almannafé og að ekkert hafi verið gert til að setja á fót rannsókn á því. Þá segir að skrifstofa þingsins hafi engin gögn sem styðji við þau ummæli.

Björn Leví Gunnarsson, þingmaður Pírata, lét umrædd orð falla en áður hafði Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður sama flokks, gert slíkt hið sama og komst siðanefnd Alþingis að þeirri niðurstöðu í síðustu viku að þar með hefði hún brotið gegn siðareglum alþingismanna. Fram kemur í yfirlýsingunni, sem undirrituð er af Helga Bernódussyni, skrifstofustjóra Alþingis, að 5. mars á síðasta ári hafi skrifstofa Alþingis skilað greinargerð um þróun og framkvæmd laga um þingfararkostnað sem birt hafi verið á vef þingsins.

„Skrifstofan hefur engin gögn sem benda til þess að rangt hafi verið haft við og röngum eða tilhæfulausum reikningum verið skilað inn til endurgreiðslu. Skrifstofan gerir athugasemdir ef skil á gögnum eru ekki í samræmi við gildandi reglur hverju sinni. Þegar þetta tiltekna mál kom til forsætisnefndar í annað sinn gerði skrifstofan á ný athugun á akstursbók Ásmundar en þar var ekkert að finna sem vakti grun um misferli.“

Rétt sé að Ásmundur hafi að eigin frumkvæði endurgreitt akstursgreiðslur sem hann hefði fengið þegar hann hafi verið í þáttagerð fyrir sjónvarpsstöðina ÍNN en þingmaðurinn hafi viðurkennt að það hefðu verið mistök að leggja inn beiðni um endurgreiðslu fyrir þann akstur. Hafa beri í huga að akstursgreiðslur Ásmundar séu tvíþættar.

„Annars vegar samningsbundinn „heimanakstur“, þ.e. akstur frá heimili að þingstað yfir þingtímann, eins og gildir um marga landsbyggðarþingmenn nærri höfuðborgarsvæðinu, gegn því að þeir afsali sér greiðslu húsnæðiskostnaðar, og hins vegar endurgreiðslur fyrir akstur á fundi og viðburði í kjördæmi. “

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert